Borgar Þór Einarsson hæstarréttarlögmaður og Kolbeinn Óttarrson Proppé, nýr þingmaður VG eru ekki sammála um mögulega aðkomu VG að nýrri ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Bjartri framtíð eins og nú er helst rætt um eftir að Bjarni Benediktsson fékk umboð til stjórnarmyndunar frá Forseta Íslands.
Borgar Þór hefur á árum áður starfað með Sjálfstæðisflokknum. Hann segist ekki viss um að of mikið beri á milli til þess að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins fái VG til liðs við nýja ríkisstjórn. Helst væru skattamál vandamál á milli flokkanna en annað ætti að gera gengið. Um ákvörðun Kjaradóms um að hækka laun Alþingismanna um 44 prósent væru forsendur augljósar þar sem laun þingmanna hefðu verið fryst eftir hrun og enn væri verið að leiðrétta laun þeirra miðað við þróun á vinnumarkaði.
Borgar þór mætti á Þjóðbraut í dag ásamt Kolbeini Óttarssyni Proppé, nýkjörnum þingmanni Vinstri grænna og fyrrverandi blaðamanns.
Kolbeinn taldi aftur á móti slíkt samstarf vera mjög ólíklegt nema Sjálfstæðisflokkurinn væri tilbúinn að taka mikið mið af stefnuskrá VG. Hann hefði orðið fyrir nokkrum vonbrigðum að núna væru vinstri flokkarnir ekki að tala saman af alvöru um stjórn. Hann sagðist aðspurður um hvort hann ætli að taka við launahækkuninni ekki vera viss. Þó væri víst að þingflokkur VG væri mótfallinn þessari ákvörðun Kjararáðs. Fyrir hann hefðu launin ekki ráðið því að hann sæktist eftir þingsæti og þetta hefði komið óþægilega á óvart frá Kjararáði. Borgar Þór taldi erfitt fyrir þingmenn sjálfa að tjá sig um þessa hækkun.