Einn og hálfur milljarður í stofnframlög

Fjögur húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra hafa verið samþykkt á Alþingi. Í vor fóru frumvörpin í gegn eftir ítarlega skoðun í velferðarnefnd. 

Tekist var á um tillögur Eyglóar í ríkisstjórn og voru frumvörpin búin að fá ítarlega aðlögun en fjármálaráðuneyti taldi á tímapunkti þau ekki fullunin og og kostnaðarsöm. 

Málið er sumsé í höfn. Meðal þess sem kveðið er á um eru \"Leiguheimili\" þar sem ríkið leggur til einn og hálfan milljarð á ári í stofnframlag. Stuðningur ríkisins til byggingar nýrra íbúa er 18 prósent á móti 12 prósent hjá sveitarfélögum. Nú þegar eru umsóknir um stofnframlög komnar fram en sveitarfélög, fasteignafélög innan þeirra og innan verkalýðssambanda geta sótt um slík framlög.  

Markmiðið í lögunum er að reist verði 2.300 svonefnd Leiguheimili á næstum fjórum árum í nýju almennu íbúðakerfi sem tekið verður upp hér á landi að danskri fyrirmynd. 

Eygló segist búast við að sveitarfélög muni leggja stofnframlag sitt í formi lóða og annarra ívilnana. Þá segir ráðherra er í viðtali á Þjóðbraut í kvöld að húsnæðisáætlanir hafi aldrei verið gerðar hér á landi þar sem metið er í ólíkum landshlutum hver þörfin verði á húsnæði, s.s. hve margt ungt fólk sé í samfélaginu hverju sinni o.s.frv. Með nýjum lögum um Íbúðalánasjóð á að taka á þessu og sjóðurinn verða stefnumarkandi með sveitarfélögum í þeim efnum, segir Eygló.