Flutningar Air Atlanda á vopnum sem grunur leikur á að notuð séu í stríði, m.a. í Sýrlandi komu í ljós í umfjöllun þáttarins Kveiks á RÚV í vikunni. Umræður á Alþingi hafa verið um málið og mörgu ósvarað um ábyrgð á málinu, umfangi og lögmæti.
Tveir þingmenn hafa haft frumkvæði að upplýsingagjöf um málið og umræðu um það á vettvangi Alþingis. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG sem er varaformaður utanríkismálanefndar og Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingu sem situr í samgöngunefnd þingsins, báðu um sérstaka fundi um málið í nefndunum. Þær mættu í Þjóðbraut hjá Lindu Blöndal í gær, fimmtudag 1.mars - og einnig Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðjuflokksins. Hann starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum við yfirstjórn Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Miðausturlöndum um tveggja ára skeið til 2016.
Í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu ræðst Háskóli Íslands nú í eina stærstu vísindarannsókn sinnar tegundar á heimsvísu þar sem skoðuð eru áhrif áfalla á heilsufar kvenna. Nánar er greint frá þessu í dag á opnum fundi í húsi Íslenskrar erfðagreiningar.Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Unnur Anna mætir í þáttinn ásamt Örnu Hauksdótturr, prófessor við læknavísindasvið HÍ en hún stýrir rannsókninni einnig.
Einn af okkar virtustu rithöfundum og rómuðustu sagnamönnum Einar Kárason mun stíga á stokk á Söguloftinu í Landnássetrinu í Borgarnesi segja söguna af Gretti Ásmundasyni. Einar mætti til Lindu í lok Þjóðbrautarinnar í sögustuði og ræddi þann margbrotna mann sem Grettir hafði að geyma.