Olíuverð heldur áfram að hríðfalla

Olíuverð fór í dag undir 50 Bandaríkjadali á fatið. Fyrir um átta mánuðum síðan var verðið á fatið af olíu um 110 Bandaríkjadalir og því hefur verðfallið verið mikið á skömmum tíma.

Í júlí mánuði einum féll verðið um 21 prósent, að því er fram kemur í Kjarnanum í dag sem vitnar í fræettavef New York Times.

Ástæðuna fyrir verðfalli á olíunni að undanförnu megi meðal annars rekja til þess að eftirspurn sé að minnka í heimsbúskpnum.

Þessar lækkanir komi illa við rússneskan efnahag og telji Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að nauðsynlegt sé fyrir Rússa að draga saman seglin og hagræða, einkum hjá hinu opinbera. Olíuútflutningur sé stærsta útflutningsgrein Rússa og er efnahagur landsins háður ýmissi þjónustu í kringum olíuiðnað.