Olíuverð að ná sögulegum lægðum

Búist er við því að verð á olíu falli enn eftir að refsiaðgerðum á hendur Írönum var aflétt nú um nýliðna helgi, en ætla má að hálf milljón tunna af hráolíu berist daglega á markað frá Íran á næstu misserum.

Sérfræðingar á olíumarkaði fullyrða að Íranar eigi miklar birgðir sem hægt er að setja á markað þegar í stað, eða 38 milljónir tunna. Fyrir vikið er útlit fyrir að verð á olíufarinu fari niður fyrir 20 dali og nái þar með sögulegu lágmarki á þessari öld.

Hassan Rouhani, forseti Írans, segir að landsmenn eigi að nota þá fjármuni og erlendar fjárfestingar sem nú séu í farvatninu til efnahagsuppbyggingar í landinu, auka atvinnu og bæta lífskjör borgaranna eftir tímabil mikillar verðbólgu og atvinnuleysis.