Olíulindir heimsins þrýtur innan 100 ára

Þær olíulindir sem þekktar eru í dag verða að öllum líkindum uppurnar innan hundrað ára.  Þetta segir Magnús Ásgeirsson sérfræðingur í olíumálum hjá N1, en hann verður gestur í fréttaskýringaþættinum heimsljósi í kvöld ásamt Daða Má Kristóferssyni auðlindahagfræðingi.  Magnús segir þó erfitt að spá nákvæmlega um þessar tölur enda fáar forsendur sem eru eins breytilegar eftir notkun, framboði og nýrri tækni í olíuvinnslu og endurnýtanlegri orku, en þetta sé engu að síður sú spá sem vísindin taka helst mark á nú um stundir.


Daði Már Kristófersson auðlindahagfræðingur hjá Háskóla Íslands segir hagkvæmast að halda uppi áætlunum um olíuleit á Drekasvæðinu eins og málin standa núna þar sem minnst 20 ár séu þar til olíuvinnsla geti mögulega hafist á þessum slóðum, og því skynsamlegra að skipuleggja út frá þeim forsendum sem þá blasa við varðandi þörf á jarðeldsneyti og möguleikum endurnýtanlegra orkugjafa. 


Þátturinn Heimsljós sem er í umsjá Sólveigar Ólafsdóttur fréttamanns er frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld.