Olíuævintýri íslands úr sögunni?

Francoise Holland, forseti Frakklands, er ómyrkur í máli gagnvart þeim „tækifærum“ sem sumir  sjái í hnattrænni hlýnun, einkum á norðurslóðum. Á Arctic Circle ráðstefnunni sem fram fór í Reykjavík fór Hollande yfir hugmyndir um olíuvinnslu á norðurslóðum í kjölfar loftslagsbreytinga. Talið er að innan árs muni skýrast hvort félag sem hefur verið stofnað um hugsanlega olíuvinnslu á Drekasvæðinu svokallaða muni telja ábata af því að láta til skarar skríða og bora eftir olíu. Ummæli forseta Frakklands kunna beint eða óbeint að vera vísbending um framhaldið.

Forseti Frakklands gerði í ræðu sinni að umfjöllunarefni „tækifærin“ sem fylgdu hnattrænni hlýnun fyrir norðurslóðir, sem sumir teldu tengjast því að hafísinn bráðni sífellt hraðar. Þá opnist siglingaleiðir, tækifæri skapist til olíu- og gasvinnslu, veiðisvæði opnist fyrir fiskiflotann, við gætum jafnvel fundið verðmæt jarðefni sem henti til námavinnslu þegar ný svæði verði aðgengileg vegna jöklabráðnunar. En þetta séu rangar ályktanir að draga, sagði Hollande. Ekki væri hægt að byggja efnahagslegar framfarir á vistkerfishamförum. „Það er ekki hægt að byggja vísindalegar framfarir á umhverfishamförum,“ sagði forseti Frakklands í ræðu sinni sem hann flutti á frönsku.

Halldór Björnsson, sérfræðingur í loftslagsmálum á Veðurstofu Íslands, segir að honum sýnist sem Hollande gefi lítið fyrir málflutning margra sem hafi mært þau tækifæri sem loftslagsbreytingar hafi í för með sér.

„Það er vitað að ekki verður hægt að vinna um 70% af þekktum olíulindum. Einungis er hægt að brenna um 30% af þeim olíu- og og gaslindum sem þegar er búið að færa til bókar hjá olíufyrirtækjum. Brenni menn meira fer hlýnunin yfir 2 gráður. Eina leiðin framhjá þessum skorðum er ef miklar framfarir verða í kolefnisförgun, en þær yrðu að vera mjög miklar til að hafa veruleg áhrif. Svo ef brenna má tæpum þriðjungi af bókfærðu jarðefnaeldsneyti, - hvaða þriðjung er þá ódýrast að vinna?“ spyr Halldór í samtali við Hringbraut.

En telur Halldór þá tímabært að kveða olíuævintýri Íslendinga í kútinn?

„Það er mjög ólíklegt að djúpsjávarvinnsla á erfiðu hafsvæði falli í þann flokk sem þarf til að olía verði unnin. Efnahagsleg rök eru því gegn olíuvinnslu Íslendinga,“ svarar Halldór.