Olís fagnar brátt 90 ára afmæli

Þátturinn Atvinnulífið hefur göngu sína á ný í kvöld kl. 20.00 eftir nokkra vikna hlé yfir jól og áramót.   Að þessu sinni heimsækir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson Olíuverslun Íslands, Olís, en fyrirtækið var stofnað árið 1927 og fagnar því 90 ára afmæli á þessu ári.  Viðmælandi Sigurðar er Jón Ólafur Halldórsson forstjóri en hann mun í þættinum fræða áhorfendur um þá starfsemi sem Olís rekur um þessar mundir.  Mikið vatn hefur runnið til sjávar í rekstri Olís á undanförnum árum vegna aukinnar tækni og samkeppni á nýjum mörkuðum svo sem á sviði skyndibita og rekstrarvara fyrir fyrirtæki og heimili.

Í þættinum verður einnig fjallað um metan sem nútíma orkugjafa og útskýrt hvernig metan er framleitt.  Þá verður komið inná þjónustu Olís við viðskiptavini m.a. með ÓB-lyklinum sem fært hefur þúsundum landsmanna betri kjör á bensíni og öðrum vörum sem tilheyra bifreiðum og heimilum svo dæmi séu tekin.  Í þættinum verður ferðast um nokkrar starfsstöðvar Olís, t.d. við Klöpp og gamli tíminn rifjaður upp í leiðinni.  Kvikmyndatöku og samsetningu annaðist Friðþjófur Helgason.