Ólína tapaði og hættir

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir mun ekki taka sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í komandi kosningum. Hún tapaði í kosningum í dag. Ólína skrifar eftirfarandi á Facebook:

„Kæru vinir. Nú er ljóst að Guðjón Brjánsson hafði betur en ég í flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Ég óska honum til hamingju með niðurstöðuna. Í raun var aðeins einn frambjóðandi í 2. sætið, Inga Björk Bjarnadóttir. Hún hlaut það sæti og ég óska henni til hamingju. Það lá fyrir frá upphafi að ég byði mig aðeins fram í fyrsta sætið og því mun ég ekki taka sæti á þessum framboðslista. Ég lagði störf min og þingmannsferil undir. Flokksmenn völdu svona. Ég þakka stuðningsmönnum mínum og velunnurum hjartanlega fyrir þeirra tilstyrk. Þetta var allt saman lærdómsríkt - ég segi kannski betur frá því seinna. Takk fyrir mig. Over and out.“