Ólína: „Hver er að biðja um að tilslökunum sé flýtt? Ég þekki engan"

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrverandi alþingiskona, gefur lítið fyrir hugmyndir heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis um að slaka á sóttvarnaaðgerðum. Hún tjáir sig um málið í Facebook-færslu.

„Ég segi nú bara eins og gömul frænka mín sagði stundum: Ég hef ekki húmor fyrir svona hringli! Eigum við ekki bara að halda þetta út, eins og um var talað, og klára dæmið? Það hjálpar ekki að vekja væntingar sem svo verður kannski ekki hægt að standa við."

Hún lætur fylgja með frétt frá Ríkisútvarpinu þar sem Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra segist hafa rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um að slaka á takmörkunum innanlands áður en núgildandi reglugerð rennur út þann 17. febrúar.

„Hver er að biðja um að tilslökunum sé flýtt? Ég þekki engan. Klárum þetta bara eftir planinu," segir Ólína að lokum.