Þingmaður Samfylkingar gagnrýnir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fyrir að hafa ekki upplýst þjóðina um geislavirk efni á Reykjanesi þegar honum var sagt frá menguninni sl. vor. Stjórnvöldum beri skylda til að upplýsa almenning um mengandi efni í umhverfinu.
Þetta er mat Ólinu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingar. Hún segir í samtali við Ríkisútvarpið að málið veki furðu.
Ólína gagnrýnir að málið sem varðar geislavirk efni við jarðvarmavirkjun á Reykjanesi sé fyrst nú að koma fram í dagsljósið. Hún hefur samkvæmt frétt Rúv lagt fram fyrirspurn á Alþingi til ráðherra heilbrigðismála, Kristjáns Þórs Júlíussonar, þar sem hún óskar skýringa á því hvers vegna almenningur var ekki upplýstur í vor þegar eftirlitsstofnun veitti ráðherra upplýsingar um málið.
Spurð hvort hættan sé ekki lítil, segir Ólína að um það sé ekki vitað. Almenningur verði að fá að njóta vafans.