„Var að hlusta á hádegisfréttir og það kom mér í vont skap. Þar var upplýst að starfshópur sem settur var á laggir fyrir margt löngu um það hvernig best sé að draga úr flugeldamengun um áramót, og átti að skila af sér tillögum í febrúar á þessu ári, sé enn ekki tilbúinn með tillögur sínar og muni ekki verða fyrr en á næsta ári.“
Þannig hefst pistill eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur á Facebook. Hún bendi á að aftur fari mengun vegna flugelda hundraðfalt yfir heilsumörk og styrkurinn sé svipaður og ef eldfjallaaska myndi berast til Reykjavíkur. Afskiptaleysi stjórnsýslunnar sína enn og aftur fram á óskilvirkni og lamandi lélega frammistöðu. Starfshópar sem hafi verið skipaðir séu handónýtir og hagsmunaaðilar komist upp með að tefja málið sem bitni svo á almenningi. Ólína segir:
„Skítt með lungnaheilsu barna og andnauð astmasjúklinga. Talsmaður samtaka ferðaþjónustunnar sagði jú í fréttum um jólin að það myndi fækka ferðamönnum ef dregið yrði úr flugeldanotkun, og það mætti nú bara ekki gerast hvað sem liði svifryksmengun. Já, hann sagði þetta maðurinn. Sumsé: Græðgissjónarmið ferðaþjónustunnar eiga nú að ráða lífi og heilsu almennings. Skítt með lýðheilsusjónarmiðin.“
Ólína kveðst þurfa að eyða enn einum áramótum utan Reykjavíkur,
„ ... enda held ég ekki út að vera hér í sprengifárviðrinu sem þá gengur yfir með þeim slysum, mengun og vanlíðan sem því mun óhjákvæmilega fylgja. Ég mun þess vegna forða mér þessi áramót með mínum maka, börnum og barnabörnum, og heimilishundinum sem líður sálarkvalir í kringum hver einustu áramót þó að ég leggi nú ekki á hann niðurgang og skjálfta á gamlárskvöldið.“