Ólíkt hafast danir og íslendingar að

Danska tryggingafélagið Tryg mun greiða iðngjaldagreiðendum 750 danskar krónur til baka sem slagar nálægt 14 milljörðum ísl króna vegna góðrar afkomu. 10 milljarðar af gróða félagsins renna til góðra mála.

Þetta kemur fram í umfjöllun TV 2 um Tryg. Hefur fréttin vakið meiri athygli en ella hér innanlands þar sem slagur stendur nú yfir meðal neytenda og íslensku tryggingafélaganna sem hækka iðgjöld á sama tíma og þau greiða sér milljarða arð.

Fésbók logar vegna frétta af þessum samanburði sem vægast sagt þykir íslensku viðskiptasiðferði í óhag. Reyndar er bónusinn til dönsku tryggingagreiðendanna háður því að tillaga stjórnar um þetta nái fram að ganga skv. frétt TV 2 en líklegt er talið að svo fari. Útkoman yrði 8% lækkun á iðgjöldum.

Eyjan.is greindi fyrst íslenskra fjölmiðla frá fréttinni.