Einar Bjarni Einarsson, lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum, var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Þar ræddi hann stöðu neytenda eftir gjaldþrot WOW air.
Að sögn Einars Bjarna er fólk í mismunandi stöðu eftir því hvernig það borgaði ferðina sína. „Það getur skipt miklum sköpum hvernig það borgaði fyrir flugmiðann, hvort að það hafi þá verið með greiðslukortum, debet eða kredit, í gegnum netgíró eða þá með millifærslu á peningum eða með gjafabréfi.
„Ef þú greiddir með greiðslukorti þá er svona nærtækast fyrir þig að annað hvort leita til viðskiptabankans sem sér um kortið og óska eftir þeirra aðstoð við að fylla út eyðublöð, eða fara þá beint til kortafyrirtækjanna, Valitor eða Borgunar, og fá aðstoðina þaðan. Þeir þá væntanlega leggja inn beiðni til færsluhirða og síðan er samningurinn á milli færsluhirðisins og söluaðilans væntanlega misjafn, en í þessu tilfelli þá er hann að ég held þannig að færsluhirðirinn innir ekki greiðsluna af hendi fyrr en þjónustan hefur verið veitt. Þannig að færsluhirðirinn er með þessar fjárhæðir og getur þ.a.l. bakfært.“
Um Netgíró segir Einar Bjarni: „Við fengum þau svör frá Netgíró í gær að þeir eru búnir að ábyrgjast það að endurgreiða þá flugmiða sem hafa verið greiddir með Netgíró, að því gefnu að kaupendur geti sýnt fram á að þjónustan hafi ekki verið veitt.“
Staðan hjá þeim sem studdust við millifærslu, t.a.m. hópferðir, er ekki jafn góð. „Í þeim tilfellum þá er væntanlega eina úrræðið að leggja fram almenna kröfu í þrotabú félagsins. Þá geta þeir byrjað á að setja sig í samband við skiptastjóra. Ég hef bent fólki á að prófa að setja sig í samband við viðskiptabankann sinn en ég efast um að það muni bera einhvern árangur. Væntanlega mun fólk reyna allt til þess að fá þetta bætt. Þetta getur varðað háar fjárhæðir, sérstaklega þegar um hópferðir er að ræða,“ segir Einar Bjarni.
Einar Bjarni segir að þar sem um almennar kröfur sé að ræða í þessum tilfellum og skuldir WOW air virðast talsvert meiri en eignirnar, sem séu kannski litlar, telur hann ólíklegt að þær fáist greiddar út.
Viðtalið við Einar Bjarna í heild sinni er að finna hér: