Eignir þrotabús United Silicon hafa að mestu farið í að greiða veðkröfur Arion banka en lítið sem ekkert mun fást upp í launakröfur á sjötta tug starfsmanna.Tjón þeirra gæti numið tugum milljóna króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem Geir Gestsson, skiptastjóri þrotabúsins, sagði ólíklegt að nokkuð fáist upp í launakröfur upp á 110 milljónir króna. Fréttablaðið segir frá í dag.
Í febrúar var sagt frá því í tilkynningu að „samkomulag hafi náðst á milli skiptastjóra þrotabús United Silicon og Arion banka um að bankinn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félagsins,“ segir í tilkynningu frá bankanum um verksmiðjuna í Helguvík á Reykjanesi sem fór í gjaldþrot í fyrra eftir viðvarandi erfiðleika og að hafa ekki getað staðið við ákvæði um mengunarvarnir. Í tilkynningunni sagði: „Nýtt félag verður stofnað um starfsemi kísilverksmiðjunnar í Helguvík. Markmið Arion banka er að vinna að úrbótum á verksmiðjunni og selja hana eins fljótt og auðið er“. Ekki er vitað hver staða starfsmanna er í þeim áformum verði af þeim