„Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að taka upp stóran hluta af málefnaskrá Vinstri Grænna á Landsfundi sínum. Er hafið 2017 stjórnarmyndunardaður?“
Svo spyr Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í nýrri færslu á facebook.
Hún rökstyður spurningu sína með því að segja að 89% tillagna ungra sjálfstæðismanna hafi hlotið brautargengi í nefndum og segir svo:
„Tillögur ungra fólu meðal annars í sér aðskilnað ríkis og kirkju, afnám refsistefnu í fíkniefnamálum og litið verði á fíkn sem heilbrigðismál ekki löggæsluvanda, lægri kosningaaldur, bætt skattaumhverfi fyrir nýsköpunarfyrirtæki, staðgöngumæðrun, lögfestingu NPA, netfrelsi, að losa landbúnaðinn við fjárstuðning ríkisins, afnám lágmarksútsvars, að tekið sé til gagngerrar endurskoðunar hvernig tekið er á kynferðisbrotamálum og að ekki ætti að leggja almannafé í stóriðju sem ekki skilar arðsemi fyrr en eftir langan tíma.“
Aðrir hafa túlkað landsfund Sjálfstæðisflokksins sem svo að hnykkt hafi verið á aðgreiningu hinna betur stæðu frá hinum og skrifar Pétur Gunnarsson blaðamaður eftirfarandi: „Niðurstaðan er enn þrengri og lokaðri flokkur en áður. Kosnir þrír forystumenn sem hvað sem líður aldri og kyni eru innvigðir og innmúraðir í auðugustu og valdmestu ættir landsins. Hvernig er hægt að fjalla um þennan landsfund án þess að tengja? 1% flokkur sem aldrei fyrr. Aldrei hefur forysta flokksins verið jafnfjarlæg almenningi. Þjónkun við útgerðina sem aldrei fyrr. Er ekki hægt að hætta að tala um litinn á slaufunni?“
Bottom of Form