Óli jóels minnist móður sinnar: „hún var alltaf til staðar fyrir alla sem í kringum hana voru“

\"\"Þóra Ólafsdóttir er látin, 67 ára að aldri. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 15. ágúst síðastliðinn eftir erfið veikindi. Fjölmargir minnast Þóru í Morgunblaðinu í dag.

Þóra fæddist á Akranesi 12. nóvember 1951. Hún starfaði lengst af hjá Sjálfstæðisflokknum. Auk þess vann hún hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og síðast hjá söluskrifstofu Þykkjabæjar í Garðabæ.

Árið 1972 giftist Þóra fyrri manni sínum, Jóel Fr. Jónssyni, fæddur 1952. Synir þeirra eru Ólafur Þór, fæddur 1972 og Jón Pétur, fæddur 1978. Árið 1984 giftist Þóra seinni manni sínum, Aad Groeneweg, fæddur 1944. Börn Þóru og Aads eru Harold, fæddur 1973, og Íris Anna, fædd 1979. Elsti sonur Þóru, Ólafur Þór, er gjarna þekktur sem Óli Jóels í Game Tíví, stuttum þáttum þar sem hann fer yfir nýjustu tölvuleiki. Óli minnist móður sinnar með fallegum orðum í Morgunblaðinu. Hann segir:

\"\"„Eftir að hafa fylgt mömmu minni síðasta spölinn í þessu jarðlífi komst ég að því hversu mikil hetja hún var og hversu sterkan vilja hún hafði til að gera allt sem hún gat til að fá meiri tíma með sínum nánustu. Því miður dugði það ekki til, þrátt fyrir endalausa baráttu og dugnað. Þessir kostir einkenndu mömmu sem var mér mikil fyrirmynd í lífinu og sýndi mér oftar en ekki hvernig ætti að gera hlutina og hvernig best væri að leysa málin. Það má segja að mamma mín hafi sett stórt „M“ í „mig“ og gegndi hún lykilhlutverki í að móta hver ég er og hvernig ég hugsa og geri hlutina. Hún var með einstaklega uppörvandi og jákvætt viðhorf og kunni alltaf að segja réttu hlutina til að stappa í mann stálinu. Hún var einn af mínum mestu bandamönnum og klettum í lífinu.

Líklega var ég ekki nógu duglegur að segja henni það og láta hana vita hversu miklu máli hún skipti mig og hversu mikið ég elskaði hana, en því miður gleymir maður sér stundum í amstri dagsins og þá lítur maður ekki upp til að segja ástvinum sínum hversu miklu máli þeir skipta.

Alltaf var glatt á hjalla í kringum mömmu, hún var brosmild, hláturmild og notaði hvert tækifæri til að létta stemninguna. Hún var sannkallaður prakkari og er líklegt að það sé skemmtilegra hinum megin eftir að hún mætti í partíið þar. Með fráfalli mömmu hefur bjartur logi í lífi mínu slokknað, en þegar fram líða stundir mun ég ná að tendra hann aftur að hluta með þeim ótal minningum sem ég á tengdum henni.

Ég vil bara segja takk mamma mín fyrir að hafa gert mig að því sem ég er í dag og hafa margoft vísað mér rétta veginn í lífinu og hjálpað mér að rata á rétta staði. Mun ég leita huggunar hjá henni „Möggu þinni“ eins og þú kallaðir hana Möggu okkar. Við munum passa upp á Friðrik Þór sem stoltur mun halda nafni þínu lifandi og njóta allra þeirra góðu ráða sem þú gafst áður en þú kvaddir okkur.“

Útför Þóru fer fram frá Akraneskirkju í dag, 27. ágúst 2019, klukkan 11.