Ölgerðin vissi af \"dauðalista\" arion

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar segir að það hafi ekki komið sér á óvart að sjá fyrirtæki sitt á lista innan úr Arion banka sem gengið hefur undir nafninu \"dauðalistinn\" en þar eru nöfn 40 fyrirtækja sem bankinn vildi taka yfir.

Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag, en listinn var fyrst gerður opinber í blaðinu í febrúar síðastliðnum: \"Við vissum alltaf að við vorum á þessum lista,\" segir Andri Þór í blaðinu og segir að framganga bankans í garð Ölgerðarinnar í kjölfar hrunsins hafi staðfest það. Hann segir raunar bankann hafa gengið eins langt og honum hafi verið unnt í þeirri viðleitni sinni að hrifsa til sín eignir af þáverandi hluthöfum fyrirtækisins.

Andri Þór lýsir atganginum í Morgunblaðinu í dag: \"Ölgerðin lenti aldrei í vanskilum með sín lán enda er fjárstreymi hjá fyrirtækinu mjög sterkt. Hins vegar urðu skuldirnar mjög miklaer enda voru þær allar í erlendum gjaldeyri. Bankinn nýtti þar tækifærið, tók 20% í fyrirtækinu sjálfur og knúði inn nýtt hlutafé.\"

Annað dæmi um hörkuna sem fyrirtækinu var sýnd segir Andri Þór hafa birst í því að fasteignir þess hafi endað að öllu leyti í eigu bankans: \"Það færðust miklar eignir yfir til bankans,\" segir Andri Þór í blaðinu.

Nánar má lesa um þessi viðskipti í Viðskiptamogganum í dag.