Landsliðsbúningur Íslands á HM í knattspyrnu í Rússlandi var frumsýndur í gær. Ítalski íþróttavöruframleiðendinn Errea hannaði og framleiðir búninginn eins og fyrri búninga liðsins.
Innan á kraganum eru letruð einkunarorð liðsins: „Fyrir Ísland“ en hönnunin er vísun í einkenni landsins, eldinn, ísinn, hraunið og vatnið, þá ólgandi orku landsins sem býr með þjóðinni. Það er líka eins og kraumandi hraunkvika spretti fram á öxlum treyjunnar. Aðalhönnuðurinn, Filippo Affani, er sagður mikill Íslandsvinur og flaggar íslenska fánanum þegar landsliðið spilar. Aðalhönnuðurinn, Filippo Affani, er sagður mikill Íslandsvinur og flaggar íslenska fánanum þegar landsliðið spilar.
Búningurinn er eins og jafnan áður í þremur litaútgáfum, blárri, hvítri og rauðri.
Það var Guðni Th. Jóhannesson sem fékk fyrsta búninginn og hafði hann þetta að segja um treyjuna, að þvi er segir í frétt á vef KSÍ: „Upp er runnin söguleg stund þegar ég tek nú við fyrstu treyjunni sem spilað verður í á fyrsta heimsmeistaramóti í knattspyrnu sem Ísland tekur þátt í. Það sem skiptir þó meira máli eru þeir sem verða í henni - við þurfum að finna stoltið og gleðina sem fylgir því að spila fyrir Ísland. Takk, treyjan lítur vel út - þar með er það ákveðið”.