Olga steinunn er látin

Olga Steinunn Weywadt Stefánsdóttir er látin eftir langvarandi baráttu við brjóstakrabbamein. Olga Steinunn háði baráttuna um tæplega sex  ára skeið eftir að hafa greinst árið 2013. Vísir greinir frá.

Olga Steinunn var mikil baráttu kona sem alla tíð ræddi veikindin og meinið opinskátt þar sem hún ræddi meðal annars við fjölmiðla og bloggaði um reynsluna lengi vel. Viðbrögð hennar við brjóstnámi á öðru brjóstinu vöktu sömuleiðis athygli, en í stað þess að fara í uppbyggingu á brjóstinu ákvað hún að fá sér húðflúr yfir örið sem myndaðist eftir að það var fjarlægt.

Olga Steinunn sagði mikilvægt að velta dauðanum fyrir sér og ræða hann:

„Sérstaklega þegar hann hangir svona fyrir ofan mig og andar ofan í hálsmálið á mér og fjölskyldunni. Ég sætti mig auðvitað ekki við að deyja og hræðist það á vissan hátt, en ég vil eiga góð ár framundan. Mér finnst líka mikilvægt að ræða um dauðann við lífsförunautinn og fara yfir helstu óskir manns,“ sagði hún þegar hún tók þátt í átaki Bleiku slaufunnar árið 2018, þar sem vakin er athygli á baráttu kvenna við krabbamein og mikilvægi þess að fara í skoðun

\"\"

Olga Steinunn / Skjáskot úr viðtali Stöðvar 2

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrir um tveimur mánuðum síðan vöktu Olga Steinunn og Gísli Álfgeirsson, eiginmaður hennar, athygli á að þörf sé á betri umgjörð fyrir börn veikra foreldra, en innslagið má sjá hér.

Þar sagði Gísli: „Við tölum um dauðann og það að deyja og reynum svolítið að lifa lífinu eins og það er, þótt það geti verið ömurlegt og gott inni á milli.“ Hann hvetur aðra foreldra í sömu stöðu til þess að gera slíkt hið sama. Hann bætti við:

„Alltaf bara segja satt, vera heiðarlegur, svara spurningum, vera hreinskilinn og opinn eins og hægt er og þú vilt. Gefa sér tíma þegar barnið þarf að spyrja“.

Olga Steinunn tók undir þetta og sagði það sérstaklega mikilvægt að svara spurningum barnanna, enda myndu þau með tíð og tíma geta í eyðurnar. Það hjálpi ekki til. „Ef að þeim er ekki svarað þá geta þau í eyðurnar og þessar eyður sem þau geta í eru kannski kolrangar.“

Hún benti auk þess á að hugmyndaflug barna gæti í mörgum tilfellum leitt þau á villigötur, þar sem þau gætu farið að kenna sjálfum sér um fráfall foreldris.

„Við verðum að vera það hreinskilin við þau að þau skilji.“