Olga Lísa Garðarsdóttir, skólastjóri FSU, sendi nemendum tölvupóst í gær vegna meints kynferðisbrots innan veggja skólans.
Fréttablaðið greinir frá málinu.
Nemandi við skólann vakti fyrst athygli á málinu á Twitter en hann gagnrýndi vinnubrögð skólans og sagði gerandann einungis hafa verið vísað úr skóla í nokkra daga vegna málsins.
Í tölvupósti Olgu sem fór til nemenda í gær kemur fram að báðir aðilar málsins séu nemendur í skólanum og undir lögaldri. „Það hefur í för með sér að þau eiga bæði rétt á að mæta í skólann eftir helgina. Það er ekki búið að dæma í málinu og því er gerandi saklaus þar til sekt er sönnuð,“ skrifar Olga Lísa meðal annars í tölvupósti sínum.
Olga Lísa segir brotið hafa átt sér stað á milli tveggja ungmenna á einu af klósettum skólans. „Svona brot setur alla í vonda stöðu, óöryggistilfinning eykst og traust til skólans dvín, því miður.“
Þá segir Olga Lísa jafnframt að skólinn sé í samskiptum við heimili beggja aðila og nú sé mikilvægast að hlúa að þeim. „Útskúfun er ekki leið sem er vænleg til árangurs.“