Ole ósáttur: sakar rúnar og rúv um tilfinningakulda – vængir voru höggnir og „hún síðan skor­in og tætt í sund­ur.“

„Frétt­in kom frá Rún­ari Snæ Reyn­is­syni. Þar var sýnt hvernig væng­ir voru höggn­ir af rjúpu og hún síðan skor­in og tætt í sund­ur. Al­gjört virðing­ar­leysi við þenn­an fal­lega og skaðlausa fugl, þessa tign­ar­legu líf­veru, sem auðgar og fegr­ar nátt­úru Íslands með feg­urð sinni og líf­legu korri.“

Þetta segir Ole Anton Bieltvedt, stofnandi dýra-, náttúru- og umhverfisverndarsamtakanna Jarðarvina í pistli á Hringbraut en hann gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega fyrir að hafa í kvöldfréttum síðastliðin föstudag fjallað um veiðar á rjúpu, sem var í fréttunum kallað hluti af sjálfbærninámi Hallormsstaðarskóla. Ole Anton segir það nafn fínt en hafi á engan hátt átt við þarna. Bætir Ole við að Rúnar Snær fréttamaður og RÚV séu sek um til­finn­inga­kulda í garð rjúpunnar sem og virðing­ar­leysi al­mennt við villt dýr, nátt­úru og líf­ríki lands­ins. Ole segir:

„Börn og ung­ling­ar horfa auðvitað líka á kvöld­frétt­ir. Þessi heift­ar­lega meðferð á rjúp­un­um gat verið eins og kennslu­stund í því að þetta eru „bara dýr“, í raun bara hlut­ir sem drepa má, mishöndla og mis­bjóða að vild og eng­an rétt eða virðingu eiga skilið.“

Bætir Ole Anton við að hefði verið um matreiðsluþátt að ræða hefði mátt líta öðrum augum á drápin en hvernig það eigi að teljast til sjálfbærnináms Hallormsstaðarskóla finnst Ola Anton óskiljanlegt. Hann segir rjúpuna standa höllum fæti og stofninn hafa dregist saman og hefði viljað banna veiðar í ár. Þá gagnrýnir Ole Anton aðra frétt um dráp á dýrum en þann 15. septermber hafi verið fjallað um dráp á gæsum og þá aftur snúið að sjálfbærnimámi í Hallormsstaðarskóla.

„ ... þó að þetta „nám“ hafi gengið út á og sýnt dráp á gæs­um með hagla­byssu, og voru fugl­arn­ir ekki kallaðir gæs­ir held­ur „hrá­efni“. Þessi frétt var líka frá Rún­ari Snæ. Góður smá­sagna­höf­und­ur, er sagt, en til­finn­inga­lít­ill fyr­ir dýr­un­um og líf­rík­inu virðist vera,“ segir Ole Anton og bætir við:

„Sýnt var hvernig skotið var á fljúg­andi gæsa­hóp eft­ir að farið var að rökkva og illa sást til og sást hvar tvær eða þrjár féllu til jarðar sýni­lega dauðar. „Hrá­efni“. Eng­um sög­um fór af þeim fugl­um sem komust und­an, særðir af högl­um, án þess að drep­ast strax, eða af dauðastríði þeirra næstu daga. Þetta þótti frétta­stofu greini­lega líka flott og skemmti­legt; fín frétt.“

Þá heldur Ole Anton áfram að beina orðum sínum til útvarpsstjóra og segir undir lokin:

„Æskilegt væri að þú eða eft­ir­maður þinn færuð ofan í saum­ana á mál­efn­inu dýra-, nátt­úru- og um­hverf­is­vernd við frétta­menn ykk­ar og að ráðherra hefði þenn­an mik­il­væga framtíðarþátt líka í huga við skip­an eft­ir­manns þíns. Því fær hún af­rit.“

Hér má lesa pistil Ole Antons á vef Hringbrautar.