„Við lýsum hneykslun okkar á því, að þú virðist hafa beygt þig fyrir þröngum hagsmunahópi „hvalveiðimanna og sægreifa“, gegn reglum og lögum landsins, dýravelferð og þjóðarhag.“
Þetta segir Ole Anton Bieltvedt, stofnandi dýra-, náttúru- og umhverfisverndarsamtakanna Jarðarvina í tölvupósti til Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra. Ole Anton er afar ósáttur en greint var frá því í dag að Hvalur hf. fékk í gær leyfi til veiða á langreyðum. Leyfið gildir í fimm ár. Mbl.is greindi frá þessu og vísaði til svars við fyrirspurn sem miðillinn sendi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Áður hafði verið greint frá misvísandi svörum varðandi úthlutun leyfis. Ólafur Ólafsson skipstjóri á skipinu Hval 9 sagði til dæmis í fréttum Stöðvar 2 fyrir rúmum mánuði að leyfið fyrir langreyðaveiðum hefði borist of seint, í lok febrúar, og því yrði engin hvalveiðivertíð hjá Hval hf. í ár. Hið rétta var þó að fyrirtækið hafði ekki fengið neitt leyfi og sótti raunar ekki um það fyrr en 14. mars.
Nú hefur leyfið verið veitt og samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf út 19. febrúar eru veiðarnar frjálsar þeim sem fengið hafa leyfi þar til tiltekinn heildarfjöldi dýra hefur verið veiddur. Fyrir yfirstandandi ár má veiða samtals 209 langreyðar.
Í fyrra voru 145 langreyðar veiddar við landið og stóð vertíðin yfir í samtals 98 daga frá 19. júní.
Ole Anton er þungorður í garð Kristjáns Þórs Júlíussonar og í tölvuskeyti segir að Jarðvinir mótmælir ákvörðuninni harðlega. Ole Anton segir:
„Við krefjumst þess hér með, að þú dragir leyfisveitinguna til baka eða segir af þér ráðherraembætti ella.“
Þá segir einnig í tölvupóstinum:
„Leggja má sérstaka áherzlu á, að það getur ekki flokkazt undir góða, ábyrga eða ásættanlega stjórnunarhætti, af þinni hálfu, að veita aðila, sem sætir lögreglurannsókn vegna 3 meintra brota á fyrri hvalveiðileyfi, reglugerð og lögum - 2 kæruatriði voru nýlega staðfest af ríkissaksóknara - nýjar veiðiheimildir, meðan að þessi meintu brot eru óútkljáð og ekki til lykta leitt. Varðar eitt kæruatriði allt að 6 mánaða fangelsi.
Slíkt verður að telja hátt bananalýðvelda einna.
Nefna má líka sérstaklega, að skv. 17. grein stjórnarskrár og Reglum um starfshætti ríkisstjórnar, frá 22. ágúst 2018, bar þér að bera nýja reglugerð um hvalveiðar undir samráðherra þína og ríkisstjórn, fyrir útgáfu, sem þú gerðir ekki, skv. m.a. opinberri staðfestingu umhverfisráðherra.
Við teljum að útgáfa nýs veiðileyfis standist hvorki kröfur um góða og heilbrigða stjórnunarhætti, né reglur og lög, en slíkt þýddi vanhæfi þitt til að fara með það ráðherraembætti, sem þú gegnir.
Við væntum viðbragða þinna innan einnar viku.“