Öldrun kallar á 30% fjölgun starfa

Í algert óefni stefnir hér á landi vegna fyrirsjáanlegs skorts á sérfræðimenntuðu fólki í öldrunarlækningum og annarrai umönnun aldraðs fólks. Ekki einasta fjölgar mjög í hópi aldraðs fólks á Íslandi á næstu árum, heldur eru viðfangefnin að verða flóknari og læknisfræðilega erfiðari, enda meðalaldurinn að hækka með þeim afleiðingum að einstakingar koma nú mun veikari inn í umönnunarkerfið en áður var.


Hewfja á sérstakt diplomanám í öldrunarhjúkrun við Háskóla Íslands í haust, en talið er að fjölga þurfi nemaplássum í greininni um að minnsta kosti þriðjung til að svara eftirspurn næstu ára fyrir sérfræðimenntað hjúkrunarfólk á öldrunarheimilum. Það sama á við sjúkraliða og þá er einnig sárleg vöntun á félagsráðgjöfum til að sinna öldruðu fólki innan sem utan öldrunarheimila.


Verkefnið er ærið: Árið 2050 er áætlað að fjöldi einstaklinga sem eru 65 ára eða eldri verði orðinn um 110 þúsund einstaklingar eða um 27% af þjóðinni. Í dag eru einstaklingar sem eru 65 ára eða eldri um 35 þúsund manns. Fjölgunin er því þreföld á næstu 35 árum.