Öldruðum gefin geðklofalyf að óþörfu

Einn af hverjum fjórum íbúum á hjúkrunarheimilum hér á landi fær sterk geðlyf án þess að vera með nokkra geðgreiningu, lyf sem jafnan eru notuð við geðklofa, að því er fram kemur í frétt á ruv.is í dag.
 
Þar segir að lyfin séu einkum gefin fólki með heilabilun sem er órólegt eða með hegðunarvanda. Mannréttindasamtök hafi gert alvarlegar athugasemdir við notkun þeirra vestanhafs en notkunin þar sé langtum minni en hér.

 

\"Þetta eru gjarnan kölluð sterk geðlyf eða neuroleptica-lyf, aðalábendingin fyrir þessum lyfjum er geðklof, \" segir Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum við vefinn - og bætir við: \"Þau geta dempað óráð, óróleika og slík einkenni en þau hafa líka aukaverkanir. Fólk getur orðið tilfinningalega flatara og svolítið mismunandi eftir því hvaða lyf eru valin þá getur fólk þróað með sér á lengri tíma einkenni sem líkjast held parkinson-sjúkdómi. Það getur svo leitt af sér byltur, brot og önnur vandamál,“ segir læknirinn enn fremur. Hann segir að rannsóknir á því hvernig lyfin virka á aldraða séu af skornum skammti, þau hafi verið þróuð fyrir yngra fólk.