Great Moments of History nefnast hálftíma langir heimildarþættir sem verða sýndir á þriðjudagskvöldum klukkan 20:00 á Hringbraut í haust, en stöðin hefur það á stefnu sinni að sýna reglulega vandaða heimildarþætti.
Í þessum þáttum er sagan skoðuð frá dagsbrún síðustu aldar - og staldrað við þá atburði sem lituðu hana mest og sterkast, en óhætt er að segja að tuttugasta öldin sé sú viðburðaríkasta í sögu mannkyns.
Þættirnir verða á dagskrá allan septembermánuð,eða fram að því að þættir Helga Péturssonar, Okkar fólk hefja göngu sína á þessum tíma á þriðjudagskvöldum en þar skoðar Helgi aðbúnað aldraðs fólks hringinn í kringum landið og hvar skóinn þrengir helst í þjónustu við þennan sífellt fjölmennari þjóðfélagshóp.
Þætti um Smiðju Páls er að finna hér: