Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðar, fær 1.550.000 krónur í mánaðarlaun samkvæmt nýgerðum ráðningarsamningi hans. En meðal launa fær hann greidda 400 kílómetra á mánuði í akstursstyrk og sveitarfélagið greiðir einnig notkun á farsíma og fyrir nettengingu.
BB.is greindi fyrst frá en Fréttablaðið fjallar um málið og lætur þess getið að alls búi 255 íbúar á Tálknafirði miðað við tölur Sambands íslenskra sveitarfélaga í upphafi árs.
Samhliða starfi sveitarstjóra er Ólafi Þór heimilt að gegna starfi formanns knattspyrnudeildar Reynis í Sandgerði áfram en samkvæmt ráðningarsamningnum má hann ekki taka að sér önnur störf án samþykkis sveitarstjórnar.
Ólafur Þór var fyrst ráðinn sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps í febrúar 2020 og voru laun hans þá 1.400.000. Launin eru tengd launavísitölu og hækka hver áramót miðað við þær breytingar.
Ráðningarsamningurinn gildir til loka maí 2026 og er gagnkvæmur sex mánaða uppsagnarfrestur.
Verði Ólafur Þór ekki endurráðinn fær hann greidd þriggja mánaða biðlaun og hefur sveitarstjórn aðgang að honum í einn mánuð eftir starfslok án frekari launa.