Ólafur Teitur Guðnason hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Ólafur Teitur var fréttamaður árin 1998 til 2007, fyrst hjá RÚV, þá DV og svo Viðskiptablaðinu. Hann var fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss fjárfestingabanka árið 2008 en var undir lok þess árs ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straumsvík, og hefur starfað þar síðan.
Ólafur Teitur er með BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands en tók hluta námsins við Albert-Ludwigs háskólann í Freiburg í Þýskalandi.