Ólafur Arnarsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, veltir fyrir sér stöðu efnahagsmála í pistli í Fréttablaðinu í dag þar sem hann segir að íslenska krónan eigi eftir að kosta þjóðina að minnsta kosti þrjú hundruð milljarða á árinu.
Ólafur minnist á að íslenska krónan hafi þegar kostað íslensku þjóðina sex milljarða á fyrstu viku ársins.
„Vegna krónunnar borgum við íbúðirnar okkar þrisvar en ekki einu sinni eins og reyndin er í löndum sem nota burðuga gjaldmiðla. Þetta finnst ráðandi stjórnmálamönnum í lagi. Spyrja má fyrir hverja þeir vinna.“
Ólafur bendir á að matvælaverð sé að fara að hækka með verndarmúrum um innlenda matvælaframleiðslu sem verði ekki til stuðnings íslenskra bænda og ekki til hagsbóta fyrir íslensk heimili.
„Verndartollar eru settir til að vernda innlenda framleiðslu, er okkur sagt. Hvaða innlendu framleiðslu verndar 50 prósenta tollur á franskar kartöflur? Hér á landi eru ekki framleiddar franskar kartöflur.
Tollkvótar eru boðnir út og þá kaupa stórframleiðendur og milliliðir í þeim tilgangi einum að koma í veg fyrir að ódýr matvara rati í hillur íslenskra verslana. Með þessu móti geta þeir haldið uppi verði til neytenda. Þetta finnst ráðandi stjórnmálamönnum í lagi. Fyrir hverja vinna þeir?
Ekki mig.
Ekki þig.“