Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sagði í viðtali í Kastljósinu í kvöld að áhugi bandarískra ráðamanna á norðurslóðum sé afgerandi stefnubreyting. Þá þykir honum athyglisvert að stefna Bandaríkjanna varðandi norðurslóðirnar hafi ekki verið endurskoðuð í Hvíta húsinu sjálfu heldur af þjóðaröryggisráðgjafanum John Bolton. Ólafur Ragnar hefur undanfarin ár verið virkur í vinnu þegar kemur að norðurslóðum og hefur verið tíður gestur á ráðstefnum og fundum þegar kemur að þessum málaflokki víða um heim.
„Mig grunaði ekki að þeir myndu koma svona fljótt inn á þennan vettvang af svona miklum krafti,“ sagði Ólafur Ragnar.
Ólafur var spurður í Kastljósinu út í ummæli Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, um kínverska tæknirisann Huawei. Telja Bandarísk stjórnvöld að Kínverjar séu að nota fyrirtækið fyrir njósnir, en þessum ásökunum hafa forsvarsmenn Huawei harðneitað. Þá harðlega gagnrýndi einnig sendiherra Kína á Íslandi málflutning varaforsetans. „Þetta er óvenjulegur pólitískur þrýstingur,“ sagði Ólafur Ragnar um þessi ummæli varaforsetans.