Á myndbandi sem svartir þjóðernissinnar í Bandaríkjunum deildu í mars má sjá Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, spjalla við hópinn um uppruna svartra og hvítra manna. Hópurinn, sem kallast Israelite School of Universal Practical Knowledge, er flokkaður sem öfgahópur og trúa þeir á yfirburði svartra manna fram yfir aðra kynþætti.
Nánar tiltekið telja þeir svart fólk eitt af tólf ættkvíslum Ísraels og er óhætt að segja að þeir séu ekki hrifnir af hvítu fólki. Þeir telja hvítt fólk vera afkomendur Esaú, eldri sonar Ísaks úr gamla testamentinu, meðan svartir menn komi af Jakobi. Um þetta ræða þjóðernissinnarnir og Ólafur Ragnar. Guðfræði hópsins er að mestu fyrir lengra komna en nánar má lesa um hana hér.
Þetta er aðeins brot úr frétt DV. Hér má lesa fréttina í heild sinni.