Embætti forseta breyst til frambúðar

Ritstjórarnir ræddu í þaula frammistöðu Ólafs Ragnars Grímssonar á forsetastóli í samnefndum þætti kvöldsins, en þar reynast vissulega margir plúsar og einhverjir áberandi mínusar eins og gengur í lífi og starfi jafn áberandi manneskju.

Það voru þeir Ingimar Karl Helgason, fyrrverandi ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs og Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar sem settust í þetta skipti á rökstóla með Sigmundi Erni og fóru yfir hæðir og dali í forsetatíð Ólafs Ragnars og fjölluðu aukin heldur um þær breytingar sem orðið hafa á embættinu á síðasta fimmtungi aldar og hvort þær séu komnar til að vera.

Athyglisvert var í þættinum, sem hægt er að skoða hér á vef Hringbrautar, að Ingimar Karl og Jón Trausti hrósuðu jafnt Ólafi Ragnari sem löstuðu hann og töldu báðir líklegt að hann hefði breytt embættinu til frambúðar, fært það nær auknum og vaxandi lýðræðisvilja þjóðarinnar.

Ritstjórarnir spáðu líka í líkleg forsetaefni og veltu fyrir sér hvort núverandi aðferð við val á forseta væri barn síns tíma, en báðir eru þeirrar skoðunar að tveggja umferða kosningakerfi sé nauðsynlegt svo nýr forseti fái öruggt umboð þjóðar sinnar.

Ritstjórarnir eru endursýndir í dag og svo aftur á laugardagskvöld, en þeir verða eftiirleiðis frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.