Ólafur ragnar með mesta fylgið

Þegar 3.305 manns hafa tekið þátt í óvísindalegri könnun Nútímans um forsetaefni Íslands á nýju ári skera tveir sig úr. Ólafi Ragnari Grímssyni hefur vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á könnunina og er hann nú með  690 atkvæði eða 20,88%. Bergþór Pálsson söngvari kemur honum næst með 17% eða 562 atkvæði.

„Einhver önnur“ vermir þriðja sætið með um 15% akvæða en Þorgrímur Þráinsson fær 12,71%.

Engin nafngreind kona er því í þremur efstu sætunum en nokkuð hefur verið rætt um mikilvægi þess að fá konu á Bessastaði.

Samkvæmt könnun Nútímans er sú kona enn ekki fundin.

Staðan eins og hún er núna:

Hver á að vera næsti forseti?

Bergþór Pálsson 17%  (562 atkvæði) 

 

Halla Tómasdóttir 8.8%  (291 atkvæði) 

 

Hrannar Pétursson 7.99%  (264 atkvæði) 

 

Ólafur Ragnar Grímsson 20.88%  (690 atkvæði) 

 

Sturla Jónsson 5.72%  (189 atkvæði) 

 

Þorgrímur Þráinsson 12.71%  (420 atkvæði) 

 

Ómar Valdimarsson 0.91%  (30 atkvæði) 

 

Einhver annar 10.32%  (341 atkvæði) 

 

Einhver önnur 15.67%  (518 atkvæði)