Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands var í löngu viðtali við CGTN, alþjóðlega rás kínverska ríkissjónvarpsins, í gærkvöldi. Í viðtalinu fór Ólafur yfir þá miklu samvinnu sem Kínversk stjórnvöld eiga við íslenska aðila um fjarvarmaveitu. Ólafur hrósar í viðtalinu framsýni kínverskra stjórnvalda í orkuskiptum og þróun hreinna orkugjafa. Ólafur hefur um áratugaskeið unnið að verkefnum í loftslagsmálum og er formaður stjórnar Arctic Circle samtakanna sem árlega halda ráðstefnu um málefni norðurslóða í Hörpu.
Viðtalið var tekið af kínversku fréttakonunni Tian Wei, sem stýrir þáttinum World Insight á CGTN.