Ólafur ragnar hannar atburðarás!

Ég skil ekki fólk sem skildi þingsetningarræðu forsetans í gær þannig að hann ætlaði ekki aftur í framboð. Þetta las fólk væntanlega út úr orðalaginu \"...set Alþingi í síðasta sinn...\" en gleymdi lykilsetningunni: \"...samkvæmt umboðinu sem þjóðin fól mér\".

Með þessum orðum byrjar Páll Magnússon nýjan pistil sinn á Hringbraut í dag, en þessi fyrrverandi útvarpsstjóri og núverandi sjónvarpsmaður á Hringbraut segir að hér hafi dæmigerður Ólafur Ragnar verið á ferðinni. Og Páll telur innihald ræðunnar augljóst: \"Hann ætlar þvert á móti aftur í framboð næsta vor og koma með nýtt umboð til þingsetningar næsta haust. Ekki nóg með það: Hann upplýsti líka í ræðunni hvaða ástæðu hann ætlar að nota þegar hann tilkynnir um framboð sitt einn ganginn enn. Hann gagnrýndi nefnilega harkalega  framgang mála við fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskránni og taldi að menn væru þar að glannast með sjálfa grunnstoð lýðveldisins.\"

Páll segir Ólaf Ragnar augljóslega vera að leggja drög að tilkynningu þess efnis að hann verði að bjóða sig fram aftur, í raun og sann neyðist hann til þess eins og tilkynningin mun jafnvel hljóma. Hér sé verið að hanna söguna: \"Þessi atburðarás kæmi heim og saman við þá skoðun margra, að Ólafur Ragnar muni aldrei láta af forsetaembættinu ótilneyddur. Það eina sem gæti komið í veg fyrir að Ólafur Ragnar bjóði sig fram aftur er að fram á sviðið stígi mótframbjóðandi sem Ólafur telur að geti haft hann undir í kosningum. Það sé nefnilega bara eitt sem hjá Ólafi Ragnari er yfirsterkara viljanum til að sitja Bessastaði þar til yfir lýkur: óttinn við að tapa í kosningum.\"