Ólafur Ragnar Grímsson hefur tilkynnt að hann ætli að bjóða sig fram áfram í sjötta skiptið til forseta.
Hann gat þess í beinni útsendingu frá Bessastöðum að undanfarin ár hefðu verið öldur mótmæla, tvær þjóðaratkvæðagreiðslur og nýlega hefðu þúsundir safnast saman til að krefjast afsagnar forsætisráðherra og nýrra kosninga.
Þótt Íslandi hafi sumpart vegnað vel sýni öldur mótmæla og flýting þingkosninga að ástandið sé enn viðkvæmt.
Í þessu umróti óvissu og mótmæla og í kjölfar nýliðinna atburða hafi fjðldi fólks höfðað til reynslu hans og ábyrgðar og beðið hann að endurskoða ákvörðun um að hætta.
Niðurstaðan sé að hann ætli áfram að standa vaktina. Hann geri sér grein fyrir að ekki séu allir á þeirri skoðun að hann eigi að halda áfram en þjóðin muni tala í næstu forsetakosningum.
Spurður hvort hann treysti ekki öðrum til að taka við af sér, sagði forsetinn að hans ákvörðun byggist ekki á vantrausti til annarra heldur einfaldlega vegna þess að svo stór breiðfylking fólks hafi beðið hann að halda áfram.
Heyra mátti saumnál detta á heimilum landsins meðan Ólafur kynnti ákvörðun sína og má segja að þjóðin hafi staðið á öndinni.