Ólafur Ragnar Grímsson segist hafa misskilið spurningu spyrils á CNN á dögunum. Það hafi skýrt hvers vegna hann hafi þverneitað fyrir að eiginkona hans gæti tengst aflandsmálum þótt nokkrum dögum síðar hafi hið öndverða komið í ljós. Þetta kom fram í viðtali fréttastofu Rúv við forseta Íslands í hádegisfréttum.
Á Bylgjunni sagðist Ólafur Ragnar skömmu fyrr í dag hafa átt við eigin fjölskyldu og var í kjölfarið spurður hvort Dorrit væri ekki hans fjölskylda.
Panamaskjölin og tengsl Ólafs Ragnars við aflandsfélög í gegnum eiginkonu hans, Dorrit, voru til umræðu.
Spurður af fréttamanni Rúv hvort það komi til greina að opna bókhald forsetahjónanna segist hann ekki hafa tekið afstöðu til þess en hann muni sýna því fulla virðingu ef Dorrit vilji ekki gera það, um einkamál hennar sé að ræða.