Um aldamótin 2000 mótaði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins stefnu um einkavæðingu ríkisbankanna, Landsbankans og Búnaðarbankans. I kjölfarið unnu bankarnir, ríkisstjórnin og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ötullega að Útrásinni svokölluðu. Bankarnir áttu að sækja markvisst inn á erlenda fjármálamarkaði og gera Ísland að einni af öflugustu miðstöðvum fjármálaumsvifa í heiminum. Í þessu skyni opnaði Landsbankinn til dæmis sérstaka innlánsreikninga í Bretlandi og Hollandi þar sem boðið var uppá betri kjör en almennt tíðkaðist. Reikningarnir þóttu skjótt vænlegir til ávöxtunar og bankinn var almennt talinn öruggur, enda um norrænan og þar með traustan banka að ræða. Þessir reikningar fengu síðar heitið Icesave-reikningar.
Nánar á
https://kjarninn.is/skodun/2018-10-24-olafur-ragnar-grimsson-bjargvaettur-thjodar-eda-skadvaldur/