Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist ekki vera að trufla umræðuna þótt hann bíði með það fram að næsta nýársávarpi að upplýsa hvort hann fari enn ferðina fram til forseta. Þetta sagði Ólafur í samtali í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun.
Ólafur Ragnar segir að ákvörðunarferli hvort hann fari fram gerist stig af stigi og hann verði að bera ákvörðun sína undir Dorrit og dætur sínar. Fram hefur komið í umræðu víða að mjög truflandi sé fyrir þá mótframbjóðendur til forsetaembættis sem eru að hugsa málið að forseti slái úr og í.
Þar fór Ólafur yfir ýmis mál og ræddi m.a. að það hefði ekki verið í eiginhagsmunaskyni að hann hefði farið fram enn eina ferðina fyrir tæpum fjórum árum þrátt fyrir að hafa gefið í skyn í nýársávarpi nokkru fyrr að hann myndi senn stíga til hliðar. Þar hefðu áskoranir frá þjóðinni vegið þyngst.
Þá taldi forsetinn að jafnvel mætti kalla það sögublekkingu ef halda ætti fram að stjórnarskrármálið sem ekki náðist fram hjá Vinstri stjórninni væri einhverjum einstaklingum að kenna. Þáttur Árna Páls, formanns Samfylkingar, hefur mjög verið til umræðu þar og tengist nýrri heimildarmynd um Jóhönnu Sigurðardóttur sem senn verður frumsýnd.
Hann neitaði því aðspurður að telja sig ómissandi á forsetastóli en áréttaði þá frelsissviptingu og ábyrgð sem fylgdi forsetaembættinu. Forseti afsalaði sér miklum hluta af persónulegu frelsi og hann hefði sjálfur fært miklar fórnir.
Þá sagðist hann meira sammála stefnumálum núverandi ríkisstjórnar en því \"offorsi\" til breytinga sem hefði verið á síðasta kjörtímabili.