Ólafur ragnar býður sig ekki fram

Ólafur Ragnar Grimsson, forseti Íslands gefur ekki kost á sér í komandi forsetakosningum í vor. Þetta tilkynnti hann í áramótaávarpi sínu í dag.
 

\"Sú margþætta óvissa sem fyrir fjórum árum leiddi til áskorana um að ég gegndi áfram embætti forseta mótar því blessunarlega ekki lengur stöðu okkar Íslendinga,\" sagði forsetinn í ávarpi sínu og bætti við: \"Því er niðurstaðan sem ég lýsti á nýársdag 2012 enn frekar í gildi nú: „að aðstæður þjóðarinnar séu þess eðlis að ég geti fremur orðið að liði ef val á verkefnum verður eingöngu háð mínum eigin vilja, óbundið af þeim skorðum sem embætti forsetans setur jafnan orðum og athöfnum.“

Hann benti aftur á móti á að margir hefðu á undanförnum mánuðum í samræðum, með orðsendingum eða bréfum höfðað til skyldu hans og áréttað að enn ríkti óvissa á ýmsum sviðum, einkum varðandi skipan Alþingis og ríkisvalds á komandi árum: \"Ég met mikils traustið sem allt það góða fólk sýnir mér en bið það og landsmenn alla að íhuga vel lýsinguna á kjörstöðu Íslands sem ég hef í dag gert að meginboðskap. Í ljósi hennar og á grundvelli lýðræðisins sem er okkar aðalsmerki finnst mér blasa við hin réttu vegamót til að færa ábyrgð forseta á aðrar herðar og hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til endurkjörs.“