Ætlar ólafur ragnar ekki fram aftur?

Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son, for­seti Íslands gefur í skyn að hann ætli ekki að ekki bjóða sig fram til embætt­is­ins næsta vor. Þetta mátti skilja af orðum hansð þing­setn­ingu á tólfta tímanum í dag, en Alþingi var sett í dag, 8. september.

„Þegar ég, sam­kvæmt umboðinu sem þjóðin fól mér, set Alþingi í síðasta sinn flyt ég þing­inu í senn djúpa virðingu mína og ein­læg­ar þakk­ir,“ sagði Ólaf­ur í ræðu sinni við þing­setn­ing­una og mátti strax túlka þau orð hans sem svo að hann byði sig ekki fram til endurkjörs á næsta ári. Eins hefur verið sagt í umræðu á samfélagsmiðlum í dag að Ólafur Ragnar sé með þessum orðum að undirbúa það að fá endurnýjað umboð. Í orðum hans felist hótun, farið þingið ekki að vilja hans í stjórnarskrármálinu, en hann aer andvígur því að kjósa um nýja stjórnarskrá samhliða forsetakosningum á nýju ári. 

Ólafur Ragnar var fyrst kjörinn forseti árið 1996 og hefur setið lengst allra forseta Íslands á forsetastóli, alls bráðum fimm kjörtímabil, eða nálega fimmtung úr öld. Hann hugðist láta af embætti 2012, en bauð sig þá fram að nýju vegna fjölda áskorana.

Ólafi Ragnari hefur verið lýst sem pólitískasta forseta Íslandssögunnar, meða, annars af forvera sínum, Vigdísi Finnbogadóttur í viðtalsþættinum Mannamáli hér á Hringbraut.