Samkvæmt öruggum heimildum verður Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands næsti aðalritari Sameinuðu þjóðanna.
Svo segir á vef Útvarps Sögu og er vitnað í Arnþrúði Karlsdóttur Útvarpsstjóra Útvarps Sögu í síðdegisútvarpinu í gær.
Gestur Arnþrúðar í þættinum var Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi.
\" Í þættinum voru ýmis mál rædd og greindi Arnþrúður þar frá því að samkvæmt öruggum heimildum væri Ólafur að taka við hlutverki aðalritara Sameinuðu þjóðanna eftir að hann hefur látið af embætti forseta Íslands,\" segir á vefnum.