\"Auðvitað er Ólafur Ragnar fyrir löngu búinn að ákveða að hann gefi kost á sér til embættis Forseta Íslands á næsta kjörtímabili. Hann er sannfærður um að íslenska þjóðin byggi framtíð sína á því að hann sé alltaf í þessu þarflausa embætti. Forseti að eilífu.\"
Á þennan veg skrifar stjórnmálarýnirinn Ólafur Jón Sívertsen, innsti koppurinn í búri íslenskrar stjórnsýslu í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is en hann sér fyrir sér að Ólafur Ragnar sé nú að setja saman hugvekju um þá óvissu sem sé í stjórnmálum á Íslandi sökum fylgis við stjórnleysingja sem kalli sig Pírata. Anarkistarnir hafi ofurtrú á beinu lýðræði og fyrirlíti auk þess froðusnakk á við það sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur tamið sér: \"Ólafi Ragnari stendur stuggur af anarkistum enda eru þeir til alls vísir,\" skrifar Ólafur Jón um nafna sinn forsetann sem hann hefur þekkt um langt árabil
\"Hugvekja þessi verður kölluð nýjársávarp,\" skrifar Ólafur Jón áfram \"og verður að venju sneysafull af væmnum orðhengilshætti, torráðnum hortittum og hálfkveðnum vísum. Ólafur Ragnar setur nú vikapilta sína, þá Guðna Ágústsson, Baldur Óskarsson og Einar Karl Haraldsson, í það niðurlægjandi starf að minna þjóðina á að án hans á Bessastöðum sé framtíð þjóðarinnar í stórri hættu. Vikapiltarnir fá hluta þjóðarinnar til að senda bænaskrá á Bessastaði fyrir áramót.\"
Honum sýnist framvindan næsta augljós: \"Ólafur Ragnar þakkar sér auðvitað fyrir að Ísland er ekki lengur ESB umsóknarland og að Ísland hafi unnið sigur í Icesave og að efnahagsmálin snúi nú til betri vegar vegna uppgangs í ferðaþjónustu landsmanna.\"
Og úrslitaatriðið sé þetta - og þar sé komin meginástæðan fyrir frekari setu á Bessastöðum: \"Ólafur telur sig vera með eitt tromp á hendi en það gæti reynst tvíeggjað sverð. Enn er óvissa um stjórnarskrárbreytingar. Hann hyggst á næsta kjörtímabili koma í veg fyrir að breytingar á stjórnarskránni helgist af því sem hann kallar pólitískum hrossakaupum. Markmið hans er einungis að koma í veg fyrir að vald forsetaembættisins verði skert eða öllu heldur að það verði gert skýrara þannig að einstaklingur í því embætti geti ekki togað það út og suður eins og hann hefur leyft sér. Það er einmitt það sem samstaða gæti tekist um á Alþingi. Að skerða vald forseta og jafnvel að leggja embættið niður. Því ekki að fela forseta þingsins að sinna þessum þarflausu verkum,\" spyr Ólafur Jón í þessum hvassa pistli sínum.
Og enn eigi Ólafur Ragnar eitt verk eftir, sem hann geti ekki misst af: \"Þó Ólafur Ragnar styðji núverandi ríkisstjórn þá er það einbeittur vilji hans að skipa utanþingsstjórn að loknum Alþingiskosningum vorið 2017. Hann treystir því að upplausn verði svo mikil á vettvangi stjórnmálanna vegna uppgangs Pírata og innkomu Viðreisnar að ekki verði unnt að mynda meirihlutastjórn. Tilraunaeldhúsið á Bessastöðum á eftir að framreiða þann rétt á vegum matreiðslumeistarans Ólafs Ragnars Grímssonar,\" skrifar Ólafur Jón Sívertsen á hringbraut.is.