Ólafur pólitískasti forsetinn

"Ég hef nú sett mér það að dæma ekki eftirmann minn, en hann hefur verið pólitískastur af þeim forsetum sem setið hafa á Bessastöðum," sagði Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands í  Mannamáli, fyrsta þættinum sem fór í loftið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í febrúar, þegar hún var spurð um vinnulag Ólafs Ragnars Grímssonar á forsetastóli. 


"Ég er mjög íhaldssöm á þetta embætti. Mér finnst að í kringum það eigi að vera sem mest staðfesta," sagði Vigdís ennfremur og bætti við: "Forsetaembættið á að vera vinur þjóðfélagsins, vinur fólksins og ég reyndi að haga mér eftir því í mínum störfum sem forseti Íslands og sitja á friðarstóli fremur en að sundra þjóðinni." 


Vigdís ítrekaði þættinum að henni fyndist að sem mest íhaldsemi ætti að vera í kringum embætti forseta Íslands: "Forseti á ekki að skipta sér mikið af því sem stjórnmálamennirnir hafa tekið að sér."  


Horfa á Mannamál á Hringbraut hér: