Í kjölfar eins þyngsta fjársvikadóms sem fallið hefur á Íslandi hefur Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, hafið störf á skrifstofu sinni aðeins ári eftir að hann hóf afplánun á Kvíabryggju. Hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi vegna svokallaðs AL Thani-máls.
Morgunblaðið greinir frá þessu og getur þess jafnframt í frétt sinni að afplánun sé ekki að fullu lokið þar sem Ólafur sofi enn á næturnar á áfangaheimilinu Vernd.
Tekið er fram í fréttinni að Ólafi og félögum hans í Kaupþingi sé skylt að vinna heimilisstörf á áfangaheimilinu.
Nýjar reglur um rafrænt eftirlit gerðu Ólafi og félögum kleift að losna svo snemma úr greipum réttvísinnar. Ólafur má þó ekki ræða við fjölmiðla nema með leyfi Fangelsimálastofnunar. Fréttamaður 365 tók umtalað viðtal við Ólaf og félaga fyrir skömmu þar sem engin iðrun kom fram í máli Kvíabryggjufélaganna sem áður störfuðu hjá Kaupþingi og ollu fjölda fólks skaða samkvæmt dómi Hæstaréttar. Að þeirra sögn voru stærstu mistökin að \"treysta kerfinu\", hinu sama kerfi og nú hefur tryggt þeim atvinnufrelsi á ný, einu ári eftir að afplánun 4 og hálfs árs fangavistar hófst á Kvíabryggju.