Ólafur ólafsson fangi byggir hótel

Byggingarferli hótels á lóð við Suðurlandsbraut 18 er hafið. Félag í eigu Ólafs Ólafssonar, fanga á Kvíabryggju, byggir hótelið. Ólafur er jafnframt aðaleigandi Samskipa og kunnur fyrir fjárráð og umsvif.

Morgunblaðið segir frá málinu í dag.

Ólafur afplánar nú fjögurra og hálfs árs dóm í fangelsinu á Kvíabryggju vegna Al Thani-málsins.

Í umdeildu viðtali við Ísland í dag kom fram að Ólafur hefði aðgang að tölvupóstum, síma og interneti sem gerði honum kleift að starfa – og e.t.v. vinna nýja viðskiptasigra sbr. frétt Morgunblaðsins í dag.