Ólafur og dorrit búin að fá samson: „ást við fyrstu sýn“

Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaief eru búin að fá hundinn sinn, Samson. Frá þessu greinir RÚV í kvöld og vitnar í Twitter-færslu forsetans fyrrverandi þar sem sjá má myndband af Samson að leika sér í snjónum. 

Samson er klónaður af hundinum Sámi, sem bjó með hjónunum á Bessastöðum. Í frétt RÚV segir að það hafi verið gert með því að taka sýni úr Sámi og senda til fyrirtækis í Texas þar sem frumur voru ræktaðar úr sýnunum. Ólafur Ragnar greindi frá því Morgunkaffinu á Rás 2 að þau hefðu ákveðið að klóna Sám eftir dauða hans. Þar sagði hann:

„Þetta er auðvitað dálítið óhugnaleg veröld en gerir það að verkum að þó Sámur verði allur getum við haldið áfram að hafa Sám okkur til ánægju og líka til að velja úr hverjum sé treystandi og hverjum ekki.\"