Ólafur neitar að mál hans skaði ísland

Ólafur Ragnar Grímsson telur að umfjöllun um tengsl hans sem þjóðhöfðingja Íslands við aflandsfélög hafi ekki skaðað Ísland.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Spurður hvers vegna hann hafi neitað tengslum við afllandsfélög í viðtali við CNN segist hann hafa meint eigin fjölskyldu. Spurður hvort hann líti ekki á Dorrit, eiginkonu sína, sem eigin fjölskyldu segist hann gera það en líti þó ekki á tengdafólk sitt með sama hætti og dætur sínar.
Spurður hvort hann hafi þó ekki verið spurður sérstaklega um Dorrit í CNN-viðtalinu sérstaklega nefnir hann sem skýringu hennar ættarumsýslu fremur en hennar persónulegu gjörðir. Hann neitar því að málið hafi orðið til þess að hann hafi hugleitt að draga forsetaframboð sitt til baka og sér ekki þrátt fyrir tugi af neikvæðum forsíðuuppsláttum blaða og fjölmiðla víða um heim um meint hneyksli hans sjálfs að það skaði landið.