„Það eina sem er athugavert við þetta er að drengfíflin væru að taka myndir af sér. Þetta er eins allir Íslendingar að ef þeir sjá belju þá verða þeir að fá selfí með henni. Þetta er hlutur sem er að gerast mjög oft allt í kringum landið allt árið um kring við fiskveiðar. Það er ódrengilegt að hafa rekið drengina fyrir þetta og enn ódrengilegra fyrir aðra sem hafa staðið í því sama. Ég hef oft gert það.“
Þetta segir Ólafur Arnberg, sjómaður og útgerðarmaður í Grindavík til margra áratuga, í samtali við Vísi, um brottrekstur þriggja sjómanna af línu- og netabátnum Bíldsey SH 65, eftir að einn þeirra skar sporðinn af hákarli og sleppti honum svo aftur út í sjó. Annar þeirra tók myndband af gjörðinni og deildi á Facebook síðu sinni. Vakti myndbandið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum.
Hann segir algengt að hákarlar séu skornir úr netum við Íslandsstrendur og furðar sig á því að enginn hafi stigið fram og varið sjómennina. Verst þykir honum að sjómenn hafi ekki tekið til varna fyrir þremenningana.
„Sannleikurinn er alltaf bestur í allri ímynd. Ég hef ekki séð myndirnar ofan í kjölinn. En samkvæmt minni reynslu í gegnum tíðina, í fimmtíu ár, hefur hákarlinn sjálfur verið langt kominn með að saga sporðinn af sér sjálfur á línunni. Hann er ekkert ánægður með að vera fastur. En kominn með svöðusár. Þetta er mjög algengt. Og rosalegt helvíti að stéttin skuli ekki vera manndómsmeiri að grípa til varna fyrir þessa drengi, sem ég þekki ekki neitt, en þetta eru kannski ungir heimilisfeður. Og að menn skuli bara vera reknir eins og hundar fyrir svona lagað,“ segir Ólafur.
Aðspurður um hvort málið snúist ekki fyrst og fremst um hegðun þeirra segir Ólafur: „Já, það er ámælisvert. Ég skil það eiginlega ekki. En, til að réttlæta það, alveg sama hvaða fíflagangur er í gangi, þá verða menn alltaf að fá selfí af sér við það. Og eitthvað sniðugt að senda það út í loftið. En, er réttlætanlegt að þessir menn, mig svíður, að aðrir hafi ekki komið þeim til varnar. Og sagt sannleikann. Því það er engan veginn stætt á að reka menn fyrir svona lagað. Ég hef verið skipstjóri og útgerðarmaður í áratugi. Og hef þurft að kveðja margan beinhákarlinn sem hefur þá stútað fyrir mér fullt af netum. Ég er ekkert einn um það.“
Formaðurinn að ljúga
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, lét hafa eftir sér í vikunni að hann hafi verið á sjó í 33 ár og hafi aldrei séð „svona ógeð.“ Ólafur telur Valmund vera að ljúga eða þá að hann hafi verið alveg einstaklega heppinn að hafa aldrei rekið augun í slíkt.
„Heldur þú að skipstjórinn á Bíldseynni hafi lagt fyrir hákarlinn að gamni sínu? Og sagt honum að flækja sig í línuna? Hann er ekki að leika sér að því að vefja línunni um hákarlinn. Hann sér um það sjálfur. Maður hefur þurft að skera heilt þorskanet frá bátnum til að losna við helvítis beinhákarlinn. Hann fer svo með það á sporðinum, guð má vita hvert,“ segir Ólafur.