Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, efstu menn Flokks fólks í Reykjavíkurkjördæmi norður og í Suðurkjördæmi, ræða í þætti á Hringbraut kosningabaráttuna og helstu stefnumál Flokks fólksins.
Þeir ræddu málefni sem hátt ber í kjördæmum þeirra, atvinnu- og samgöngumál, frítekjumarkið, húsnæðislið vísitölunnar og aðgerðir til að tryggja örugga framfærslu hópa sem höllum fæti standa í samfélaginu. Þá ræddu þeir nýja skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulega glæpastarfsemi hér á landi og vöxt í vændi, mansali, eiturlyfjainnflutningi og þjófnuðum.
Þeir lögðu áherslu á að lögreglan hefði nægilegan mannafla og aðstöðu til að bregðast við þeirri hættu sem lýst er í skýrslunni. Þá ræddu þeir nauðsynlegar lagabreytingar, vegabréfaáritanir og mat á hag Íslands af áframhaldandi þátttöku í Schengen-samstarfinu. Þáttinn má nálgast með auðveldum hætti í tímaflakki Hringbrautar.